30.11.2008 | 04:16
EU(ESB)???
Ég hef oft spurt sjálfan mig og aðra hvað græðum við á að ganga í EU annað en að fá að nota evruna, evran er jú þokkanlega stöðugur gjaldmiðill en önnur svör hef ég ekki fengið. Mun EU vernda okkur gegn bankamönnum í framtýðinni, nei ég held ekki og er ég þess nokkuð fullviss að í okkar efnahagshruni brutu þeir engin EU lög. Mun EU tryggja að við njótum góðs af okkar auðlindum? NEI aldrei og ekki heldur IMF!! Vill EU fá Ísland inn, JÁ!! og hvers vegna?? vegna þess að við eigum gríðarlegar auðlindir, fiskurinn í efnahagslögsögunni okkar, öll hreina orkan okkar sem við höfum virkjað og við munum getað virkjað í heitu vatni og fallvötnum og síðast en ekki síst OLÍA í meira magni en Noregur hefur, heldur einhver heilvita maður að THE Great Britain og EU lýði það að tvö ríki í Evrópu þ.a. eitt smáríki, utan allra soviet bandalaga, eigi nánast allar olíulindir sem fyrirfinnast á EES svæðinu? NEI!!! Efnahagshrunið er tilkomið vegna þess að menn pössuðu sig ekki á þessu, bankamenn okkar tefldu of djarft og voru auðveld bráð að fella, nú er Ísland í sárum og auðlindir okkar í hættu!! Ég hef engin afgerandi svör við þessu en þessa hluti þarf að passa. Get samt sagt það sem mér finnst.
Ég persónulega vil ekki gefa auðlindir okkar til hins nýja Soviet EU, frekar vil ég að við snúum okkur til Noregs með efnahagsbandalag í huga og ef það er ekki hægt, þá til USA, taka upp Dollar og stofna til efnahagsbandalags við þá, þar sem þeir hafa alltaf reynt að styðja þau ríki sem taka upp dollar, annað en EU, ef það gengur ekki þá gerast enn ein stjarnan í Bandaríska fánanum, þetta er allt betri kostur en EU!!! sem hafa þóst vera vinir okkar en hertekið eignir okkar með hryðjuverkalögun og gefið skít í okkur þegar illa gengur. (ég veit að það voru bretar sem beittu hryðjuverkalögunum en hefur EU einhverntíman mótmælt þeim???.)
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 4263
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


arnorbld
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.